Farðu í vöruupplýsingar
1 af 2

Tanacetum parthenium 'Carlos' - glitbrá

Tanacetum parthenium 'Carlos' - glitbrá

Venjulegt verð 350 ISK
Venjulegt verð Útsöluverð 350 ISK
Afsláttur Uppselt
Verð með vsk

Gulblaða afbrigði af glitbrá eru ræktuð fyrst og fremst vegna blaðfegurðar og eru notuð til uppfyllingar í blómabeð og ker. Fjölær planta sem er ræktuð hér sem sumarblóm, en getur lifað af milda vetur og orðið skammær fjölæringur.

'Carlos' er afbrigði sem blómstrar þéttfylltum, hvítum blómum seint í ágúst og fram í september. Hæð 10-20 cm.

Fræ frá Muller Seeds, pakkað af Garðaflóru.

Sáningartími: febrúar. Fræ rétt hulið með fíngerðum vikri og haft við stofuhita fram að spírun. Spírun eftir 1-2 vikur. Fjölær planta sem getur lifað milda vetur af með vetrarskýlingu.

20 fræ í pakka

Skoða alla vörulýsingu