Terms of service
Almennt
Seljandi er Garðaflóra slf., kennitala: 550421-1430, Suðurgötu 70, 220 Hafnarfirði. Sími: 7803775. Netfang: gardaflora@gardaflora.is
Garðaflóra slf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.
Afhending vöru
Allar pantanir eru afgreiddar eins fljótt og auðið er. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar.
Pöntunum sem óskast sendar er dreift af Dropp, eða sé þess óskað, Íslandspósti, og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar dreifingaraðila um afhendingu vörunnar. Garðaflóra slf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá Garðaflóru slf. til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Verð á vöru og sendingakostnaður
Öll verð í vefverslun eru í íslenskum krónum með virðisaukaskatti. Sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram.