Garðaflóra kynnir með stolti
blómapotta og gróðurker frá ECOPOTS.
Kynningarafsláttur út maí!

Pottarnir eru framleiddir úr endurunnu plasti og steinefnum, sem gefur þeim náttúrulegt útlit leirpotta, en plastið gerir þá létta og meðfærilega. Þeir eru mun þykkari en flestir plastpottar, um 1 cm á þykkt og því sérstaklega frostþolnir.

Pottarnir henta jafn vel innandyra sem utan. Það þarf ekki að bora göt í botninn til að hafa þá úti, þeir eru með gúmmítappa sem hægt er að taka úr og setja aftur í eftir þörfum. Miðjan á botninum er aðeins innfelld, til að tryggja gott frárennsli. Sumar gerðir eru fáanlegar með vatnshólfi sem auðveldar jafna vökvun innandyra og einnig er hægt að fá undirskálar undir pottana ef þeir eru notaðir inni.

Pottarnir fást í ýmsum stærðum og gerðum í náttúrulegri litapallettu, sem nær yfir allar gerðir og stærðir. Þannig er hægt að raða saman mismunandi lögun og stærðum í sama litnum, eða blanda saman litum sem tóna allir vel saman.
Hönnunin er stílhrein og tímalaus svo pottarnir falla að hvaða umhverfi sem er.


Ef potturinn rispast eða óhreinkast þarf ekki að örvænta.
Með viðgerðarsvampinum verður hann aftur eins og nýr!

Pottarnir hafa fengið fjölda vottana um gæði og sjálfbæra nýtingu á plasti.
Þá er hægt að endurvinna að fullu.

ECOPOTS er vörumerki belgíska fyrirtækisins The Pots Company.