Refund policy
Að skipta og skila vöru
Samkvæmt lögum um neytendasamninga nr. 16/2016 hafa viðskiptavinir rétt til að skila ógallaðri vöru sem keypt er í vefverslun, og fá að fullu endurgreidda, ef henni er skilað innan 14 daga frá kaupum. Kostnaður við að skila vörunni, s.s. sendingarkostnaður, greiðist af kaupanda. Kaupandi er sá sem skráður er sem slíkur á reikningi. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið.
ATH: Ekki er hægt að skila plöntum, laukum eða fræjum.
Viðskiptavinum er velkomið að breyta eða afturkalla pantanir áður en þær eru sendar/afhentar og fá fulla endurgreiðslu.
Ekki er hægt að afturkalla sérpantanir eftir að þær eru komnar til landsins.
Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um neytendakaup nr.48/2003 og laga um neytendasamninga.
Vinsamlegast sendið tölvupóst á gardaflora@gardaflora.is eða hringið í s. 7808875 varðandi skil eða endurgreiðslu á vöru.