Farðu í vöruupplýsingar
1 af 2

Garðaflóra

Lathyrus odoratus 'Prince of Orange' - ilmertur

Lathyrus odoratus 'Prince of Orange' - ilmertur

Venjulegt verð 640 ISK
Venjulegt verð Útsöluverð 640 ISK
Afsláttur Uppselt
Verð með vsk

Ilmertur eru einærar klifurjurtir sem geta vaxið upp eftir runnum, klifurgrindum eða hverju því sem þær ná að festa sig í. Þær blómstra stórum, oft mikið ilmandi blómum í flestum litum að gulum undanskildum. Geta náð yfir 2 m hæð.

'Prince of Orange' er ilmertuafbrigði sem blómstrar appelsínugulum og rauðbleikum blómum.

Fræ frá Chiltern Seeds, pakkað af Garðaflóru.

Sáð í mars - apríl. Fræ lagt í bleyti í volgu vatni í 24 klst. áður en því er sáð. Fræ hulið og haft við stofuhita fram að spírun. Best er að sá 5-6 fræjum í sáningarbox og dreifplanta svo í heilu lagi í 2 l pott til að rækta áfram því þær þola illa dreifplöntun. Ilmertur eru frekar á bæði vatn og næringu, svo mikilvægt er að passa að moldin þorni ekki og að þær fái næga næringu.

10 fræ í pakka

Skoða alla vörulýsingu