Garðaflóra
Lathyrus odoratus 'High Society' - ilmertur
Lathyrus odoratus 'High Society' - ilmertur
Ekki tókst að hlaða afhendingarstöðum
Ilmertur eru einærar klifurjurtir sem geta vaxið upp eftir runnum, klifurgrindum eða hverju því sem þær ná að festa sig í. Þær blómstra stórum, oft mikið ilmandi blómum í flestum litum að gulum undanskildum. Geta náð yfir 2 m hæð.
'High Society' er ilmertuafbrigði sem blómstrar mikið ilmandi, hvítum blómum, með bleikum jöðrum.
Fræ frá Chiltern Seeds, pakkað af Garðaflóru.
Sáð í mars - apríl. Fræ lagt í bleyti í volgu vatni í 24 klst. áður en því er sáð. Fræ hulið og haft við stofuhita fram að spírun. Best er að sá 5-6 fræjum í sáningarbox og dreifplanta svo í heilu lagi í 2 l pott til að rækta áfram því þær þola illa dreifplöntun. Ilmertur eru frekar á bæði vatn og næringu, svo mikilvægt er að passa að moldin þorni ekki og að þær fái næga næringu.
10 fræ í pakka
Share
