Farðu í vöruupplýsingar
1 af 1

Brassica oleraca F1 'Bright and Early™ Mix' - skrautkál

Brassica oleraca F1 'Bright and Early™ Mix' - skrautkál

Venjulegt verð 340 ISK
Venjulegt verð Útsöluverð 340 ISK
Afsláttur Uppselt
Verð með vsk

Skrautkál er ræktað vegna blaðfegurðar frekar heldur en til matar og er notað til uppfyllingar í blómabeð og ker. Það heldur sér vel frameftir hausti og hentar því vel í haustskreytingar í blómaker eftir að sumarblómin eru búin.

'Bright and Early™ Mix' er F1 skrautkálsyrki sem verður um 20-25 cm á hæð með mjög þéttu, hrokknu laufi. Það tekur lit snemma og þarf ekki meiri svala en íslenska sumarið býður almennt upp á til að taka lit. Blanda af þremur litaafbrigðum.

Fræ frá Muller Seeds, pakkað af Garðaflóru.

Sáð í mars. Fræ rétt hulið með fíngerðum vikri og haft við stofuhita fram að spírun. Spírun eftir 3-5 daga. Uppeldistími um 12 vikur. Tekur lit á 2-3 vikum utandyra eftir að plöntur hafa náð hæfilegri stærð.

20 fræ í pakka

Skoða alla vörulýsingu