Farðu í vöruupplýsingar
1 af 3

Blaðsalat 'SimplySalad™ Global Gourmet Mix'

Blaðsalat 'SimplySalad™ Global Gourmet Mix'

Venjulegt verð 620 ISK
Venjulegt verð Útsöluverð 620 ISK
Afsláttur Uppselt
Verð með vsk

Salatblanda af grænum og rauðum blaðsalatafbrigðum ásamt asískum salattegundum sem gefa smá krydd í salatið. Húðað fræ með nokkrum fræjum í hverri pillu sem má sá beint í pottinn sem ætlunin er að rækta í. Hægt að rækta inni árið um kring ef gróðurlýsing er til staðar eða í björtum glugga yfir sumarmánuðina. Getur vaxið utandyra á sólríkum, skjólgóðum stað yfir hásumarið.

Fræ frá Muller Seeds, pakkað af Garðaflóru.

Hægt að sá hvenær sem er ef gróðurlýsing er til staðar, annars er sáð í mars-apríl þegar sól fer að hækka á lofti. Fræ rétt hulið með fíngerðum vikri eða pottamold. Þar sem nokkur fræ eru í hverri pillu er ekki ráðlegt að sá of þétt. Hentug pottastærð er 10 cm á meðan á uppeldi stendur, má svo umpotta í stærri pott þegar plönturnar stækka.

10 fræpillur í pakka

Skoða alla vörulýsingu