Farðu í vöruupplýsingar
1 af 2

Basil 'Everleaf Lemon' - Ocimum basilicum

Basil 'Everleaf Lemon' - Ocimum basilicum

Venjulegt verð 570 ISK
Venjulegt verð Útsöluverð 570 ISK
Afsláttur Uppselt
Verð með vsk

Mjög þéttgreinótt, upprétt afbrigði af sítrónubasil sem hentar vel í pottaræktun. Verður 60 cm á hæð. Blómstrar allt að 8 vikum seinna en hefðbundin afbrigði og gefur lengi af sér. Sítrónubasil hentar vel í sósur, marineringar og salöt.

Fræ frá Muller Seeds, pakkað af Garðaflóru.

Basil er of viðkvæmur til að vaxa utandyra hér á landi. Hægt að sá hvenær sem er ef gróðurlýsing er til staðar, annars er sáð í mars-apríl þegar sól fer að hækka á lofti. Fræ ekki sáð of þétt og rétt hulið með fíngerðum vikri eða pottamold. Þar sem plönturnar eru mjög þéttar og greinast mikið, er ekki gott að planta mörgum plöntum saman.  

15 fræ í pakka

Skoða alla vörulýsingu