Farðu í vöruupplýsingar
1 af 2

Garðaflóra

Opuntia humifusa - förufíkjukaktus

Opuntia humifusa - förufíkjukaktus

Venjulegt verð 200 ISK
Venjulegt verð Útsöluverð 200 ISK
Afsláttur Uppselt
Verð með vsk

Förufíkjukaktus er frostþolinn kaktus sem vex í austanverðri N-Ameríku norður til Kanada. Gæti mögulega þrifist í köldu gróðurhúsi hér, en gengi sjálfsagt betur í frostlausum gróðurskála eða sem stofuplanta. Þarf sólríkan vaxtarstað og sendinn jarðveg. Blómstrar gulum blómum. 

Fræ frá Jelitto, pakkað af Garðaflóru.

Sáningartími: janúar-febrúar. Fræ getur verið allt að einu ári að spíra. Það getur flýtt spírun og aukið spírunarhlutfall að leggja fræ í bleyti og kæla það í nokkrar vikur áður en það er látið spíra við stofuhita. Þá er 80°C heitu vatni hellt yfir fræið og það látið liggja í bleyti í sólarhring. Fræ síðan blandað í rakan vikur í rennilásapoka og kælt í 8 vikur áður en því er sáð. Vikrinum úr pokanum er þá hellt yfir moldina og þjappað niður.

10 fræ í pakka

Skoða alla vörulýsingu