
Haustlaukar - staðarval
Vaxtarskilyrði
Við staðarval á haustlaukum þarf að taka mið af jarðvegsgerð og fjölda sólarstunda. Allar tegundir haustlauka þrífast best í sól, í jarðvegi sem drenar vel.
Flestum tegundum hættir til að veslast upp með tímanum ef jarðvegurinn er of blautur, þó þeir nái mögulega að blómstra fyrsta vorið. Ef jarðvegurinn er of þéttur og leirkenndur er hægt að bæta hann með því að blanda í hann grófum sandi og lífrænum efnum, t.d. safnhaugamold, moltu, sveppamassa eða húsdýraáburði. Góður mælikvarði á hversu miklu þarf að bæta í jarðveginn er að bleyta hann aðeins og hnoða kúlu, ef hún klessist saman, þarf að blanda meiru í þangað til hún molnar auðveldlega þegar hún er hnoðuð saman. Tegundir sem þurfa sérstaklega vel drenaðan jarðveg eru t.d. krókusar, perluliljur, smáblómapáskaliljur og villitúlipanar og ætti því að blanda aukaskammti af sandi í jarðveginn þar sem þessar tegundir eru gróðursettar.
Skortur á sólarljósi kemur niður á blómgun hjá mörgum tegundum, þótt sólarleysið drepi þær kannski ekki. Tegundir sem þola sól aðeins part úr degi eru t.d. túlipanar, stórblóma páskaliljur, haustliljur, vetrargosar og stjörnuliljur.
Hávaxnari tegundir s.s. túlipanar, stærri páskaliljur og hávaxnir skrautlaukar þurfa þokkalega gott skjól svo blómstönglarnir brotni ekki.
Gróðursetningarstíll
Það eru ýmsar leiðir til að gróðursetja haustlauka þannig að þeir njóti sín vel.
1. Gróðursett í breiður
2. Smáar tegundir gróðursettar í grasflatir
3. Gróðursett í búntum inn á milli fjölæringa í blómabeðum
4. Gróðursett í blómaker
Persónulega finnst mér það ekki koma vel út að gróðursetja í einfaldar raðir með jafnt bil á milli laukanna eins og gefið er upp á pakkningunum. Að mínu mati lítur það mjög ónáttúrulega út og ef blómin eru stök og bilið á milli of langt verður heildarmyndin heldur litlaus. Ef fólk dreymir um lauka í beinni línu, þarf röðin að vera a.m.k. þreföld þannig að laukarnir skarist á milli raða og bilið á milli má ekki vera of mikið til þess að það náist nægileg þéttni til að blómin njóti sín.
Gróðursett í breiður
Það er mjög tilkomumikið að sjá stóra fleti af sömu sort, sem mynda jafnvel mynstur. Þessi aðferð er helst notuð í almenningsgörðum og oftast eru túlipanar notaðir, þó aðrar tegundir komi líka til greina.
Þessi aðferð hentar ekki vel í heimilisgarða því hún tekur mikið pláss og eftir að laukarnir hafa lokið blómgun þarf að planta einhverju í staðinn eins og t.d. sumarblómum svo beðin standi ekki tóm allt sumarið. Það kostar því talsverða fyrirhöfn og peninga að kaupa bæði lauka og sumarblóm og planta árlega til að fylla slík beð.
Það er þó hægt að nota þennan stíl á smærri skala í heimagörðum, hvort sem plantað er einni sort eða nokkrum blandað saman og gróðursetja svo sumarblóm eftir að laukarnir hafa lokið blómgun. Með því að blanda saman mismunandi laukplöntum, t.d. hátíðaliljum og túlipönum fæst lengri blómgunartími.
Gróðursett í grasflatir
Það getur verið virkilega fallegt að planta smágerðum laukplöntum s.s. krókusum, smáblóma páskaliljum, vorblómstrandi írisum, snæstjörnum og stjörnuliljum, í grasflatir. Þannig skapast einskonar blómaengi á meðan grasið er að hefja vöxt. Til að útlitið verði náttúrulegt er best að blanda öllum tegundum saman, kasta þeim upp og gróðursetja þar sem laukarnir lenda. Þar sem allar þessar tegundir eru fjölærar má ekki slá grasið fyrr en lauf laukanna hefur fölnað svo laukarnir nái að safna forða fyrir blómgun næsta vors. Það er því ráðlegt að gróðursetja laukana annaðhvort í jaðra grasflatarinnar eða skilja eftir gönguleiðir þar sem laukum er ekki plantað og því hægt er að slá þegar grasvöxtur er kominn í gang.
Önnur leið er að gefa sköpunargáfunni lausan tauminn og planta laukunum í mynstur með gönguleiðum á milli. Þannig væri hægt að blanda saman leið 1 og 2, gróðursetja litafleti í mynstur sem myndi svo hverfa í grasflötina þegar lítður á sumarið, en birtast svo aftur að vori.
Gróðursett á milli fjölæringa
Sú leið sem ég hef mest notað er að nýta lausa plássið á milli plantna í fjölæringabeði og gróðursetja haustlaukana þar. Þeir fylla upp í bilin á meðan fjölæru plönturnar eru að komast af stað og hverfa svo undir þær þegar laufið er farið að visna. Þessa aðferð má nota fyrir allar tegundir haustlauka. Ég set laukana frekar þétt niður, í hring, þannig að þeir myndi þéttan brúsk. Það er mikilvægt að gæta þess við staðarval að planta laukunum ekki innanum fjölærar plöntur sem vaxa þeim yfir höfuð, því blómin þurfa að sjást og laufið þarf að fá sólarljós til að ná að safna forða í laukana fyrir blómgun næsta árs.
Gróðursett í potta
Það er hægt að rækta allar tegundir af haustlaukum í pottum eða blómakerjum, en þó eru nokkur atriði sem mikilvægt er að hafa í huga.
Því stærri sem blómakerin eru, því betra, því það minnkar hættu á frostskemmdum. Ef plantað er í minni potta er öruggast að geyma þá niðurgrafna í reit. Svo er mikilvægt að tryggja að ekki rigni ofan í pottana, best er að vökva létt þegar plantað er í pottana og setja svo viðarplötu yfir til að koma í veg fyrir að rigni ofan í þá.
Best er að geyma kerin á skýldum stað, helst föstu undirlagi sem loftar ekki undir, semsagt ekki viðarpalli.