{"product_id":"lathyrus-odoratus-our-harry","title":"Lathyrus odoratus 'Our Harry' - ilmertur","description":"\u003cp\u003eIlmertur eru einærar klifurjurtir sem geta vaxið upp eftir runnum, klifurgrindum eða hverju því sem þær ná að festa sig í. Þær blómstra stórum, oft mikið ilmandi blómum í flestum litum að gulum undanskildum. Geta náð yfir 2 m hæð.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e'Our Harry' er ilmertuafbrigði sem blómstrar ilmandi, bláum blómum með fjólubláum blæ.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFræ frá Chiltern Seeds, pakkað af Garðaflóru.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSáð í mars - apríl. Fræ lagt í bleyti í volgu vatni í 24 klst. áður en því er sáð. Fræ hulið og haft við stofuhita fram að spírun. Best er að sá 5-6 fræjum í sáningarbox og dreifplanta svo í heilu lagi í 2 l pott til að rækta áfram því þær þola illa dreifplöntun. Ilmertur eru frekar á bæði vatn og næringu, svo mikilvægt er að passa að moldin þorni ekki og að þær fái næga næringu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e10 fræ í pakka\u003c\/p\u003e","brand":"Garðaflóra","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":47335055687933,"sku":null,"price":690.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"url":"https:\/\/gardaflora-verslun.is\/products\/lathyrus-odoratus-our-harry","provider":"Garðaflóra verslun","version":"1.0","type":"link"}